Hugarfrelsi – Tilfinningaspjöld

5.000 kr.

Tilfinningaspjöld Hugarfrelsi eru upplögð til að kenna börnum á tilfinningar sínar en spjöldin efla tilfinningagreind barna á ýmsa vegu meðal annars með því að auka orðaforða þeirra, meðvitund um ólíkar tilfinningar og tjáningu þeirra.

Tilfinningaspjöldin eru þrennskonar.
Spjöld með stökum tilfinningaandlitum að framan og orði yfir tilfinningu að aftan. Þau henta vel í upphafi kennslu á tilfinningum.

Spjöld með mörgum tilfinningaandlitum að framan og orði yfir tilfinningu að aftan. Þau henta vel þegar grunnkennsla á tilfinningum hefur átt sér stað.

Úrræðaspjöld sem aðstoða barnið við að vinna með tilfinningar sínar.

Bæklingur með hugmyndum að notkun spjaldanna fylgir með.

Tilfinningaspjöldin koma í poka og henta afar vel í leik- og grunnskólum sem og uppeldinu.

Ekki til á lager